Upplýsingar

Peptíð eru lítil keðja af amínósýrum – í rauninni byggingareiningar líkamans sem virka eins og skilaboðakerfi milli frumna. Þau segja líkamanum hvað hann á að gera, hvenær hann á að gera það og hvernig hann á að bregðast við. Þessi skilaboð geta haft áhrif á ýmis ferli eins og vöðvauppbyggingu, húðgæði, bata, svefn og jafnvel efnaskipti.

Það sem gerir peptíð sérstök er að þau eru ekki að þvinga líkamann til neins. Þau eru meira eins og „mjúk leiðsögn“ – skilaboð sem minna líkamann á það sem hann kann nú þegar. Þau hjálpa honum að virkja ferli sem voru sterkari áður, en hafa kannski dregist saman með aldri, streitu eða álagi. Í þeim skilningi styðja peptíð líkamann við að starfa á hærra og skilvirkara plani, í takt við hans eigin náttúru.

En eins og með allt sem hefur áhrif á líkamann er mikilvægt að nálgast peptíð af ábyrgð. Ekki öll peptíð eru jafn vel rannsökuð, og gæði geta verið mismunandi eftir framleiðendum. Röng notkun, of stórir skammtar eða óviðeigandi samsetningar geta haft óæskileg áhrif. Þess vegna er mikilvægt að:
• kynna sér vel hvaða peptíð er verið að nota og hvað það gerir
• byrja rólega og fylgjast með viðbrögðum líkamans
• velja áreiðanlega framleiðendur
• og, ef mögulegt er, ráðfæra sig við heilbrigðisstarfsfólk

Þegar peptíð eru notuð meðvitandi og af virðingu fyrir líkamanum geta þau orðið öflugt tæki til að styðja við náttúrulega getu hans – ekki með því að stjórna honum, heldur með því að vinna með honum.

Peptíð eru ekki töfralausn heldur virka mest samhliða heilbrigðum lífsstíl og jákvæðu hugarfari.

linkur fyrir blöndun með Bac water Peptide Calculator - Cellgenic

linkur fyrir skammtastærðir Practical Peptide Dosage Education & Dosing Charts